Sælir,

Eins og sumir hafa tekið eftir, þá erum við (skipuleggjendur HRingsins) að fara að halda onlinemót.

Sökum þess að þetta er fysta onlinemótið sem við höldum, þá ætlum við að hafa þetta í smærri sníðum en flestir aðrir.

Við erum ekki búnir að velja hvaða lið fá boð um að taka þátt í mótinu, þannig endilega sendið einhverjum okkar skeyti á irc ef þið hafið áhuga á að nefna liðið ykkar.

Þið getið nálgast okkur undir eftirfarandi nicks á irc:

void-eth
Eon^
ElgTanadur
V|ZiRiuS
DREDINN

Nánari upplýsingar um mótið:

Fjöldi liða: 8
Þátttökugjald: 2000kr
Verðlaun: Aðeins verða veitt verðlaun fyrir fysta sætið. Við erum að ákveða hvað verður í verðlaun, en það má búast við því að þau verði um það bil 25000kr+ virði.

Það verður síðan birt heimasíða með öllum upplýsingum og reglum í kvöld. Þannig ef ég hef gleymt einhverju mikilvægu, þá sjáið þið það á henni.

Kv, Egill Th