Góðir hálsar!

Counterstrækerar hafa að undanförnu horft uppá, með tárin í augunum, gamalgróin klön leggja upp laupana og nægir þar að nefna Hate og 3D. Því er gaman að segja frá því að nýtt klan – [.Luv.] - hefur nú verið stofnað og [GGRN] mun að sjálfsögðu leggja sitt af mörkum til að [.Luv.] eigi fyrir höndum bjarta framtíð. [GGRN]Fréttastofan hefur ákveðið að draga sig í hlé í viku því tekin hefur verið ákvörðun um að lána hinu nýja klani [GGRN] lénið í viku, svona rétt á meðan þeir drengir eru að koma undir sig fótunum. Það má því sjá hvað þessir frísku strákar hafa til málanna að leggja á <a href="http://www.ggrn.org">www.ggrn.org </a>

Hugsanlega má deila um áherslur [.Luv.] en mottó þeirra er: Drengir með drengjum. [GGRN] tekur heilshugar undir að kærleikurinn verður að ríkja svo fremi að innileikar séu í hófi. Eða þannig. En auðvitað er þetta matsatriði og hvers og eins að ákveða hvernig kosið er að haga lífi sínu. Við notum þetta tækifæri og bjóðum þessa hýru drengi velkomna til leiks.

- [GGRN]Rooster