Ég veit ekki en mér finnst einhvernveginn eins og Counter-Strike á íslandi sé orðinn eitthvað stuck..

Núna tildæmis þegar Hate mætir endalokum sínum þá fara bara allir í núþegar full klön/eitthvað gamalt..

Kannski eru menn bara svona vanir því að vera í góðu klani að þeir bara þora ekki að gera neitt annað en að stökkva undir næstu heitu sæng.

Ég man dagana hérna þegar SiC voru og hétu og þóttu upprennandi snillingar , SIR sem ég vill bara segja að hafi verið eitthvað stórkostlegasta lið sem ég hef spilað og get bara sagt að ccp-ð hafi jafnast á við besta lið þeirra (þótt kannski að öðruvísi hafi farið á þeim tímum) og TVAL voru stórveldi.

Svo blandast þetta allt í einhvern graut..

Jú 3gz komu fram á sínum tíma og voru með frábæra menn innanstokks en eitthvað fór mis og allt fór það í steypu og núna er þetta á köflum eins og færeyska útlendingahersveitin

Það sem ég er að meina að allt er að renna í eitt hérna, meina Love var stútfullt af frábærum leikmönnum áður en ex-Hate menn komu til staðar meina þá er bara þarna samansafn af frábærum leikmönnum sem fá aldrei að njóta sín til fulls því þeim er bara dömpað í einhver random b,c,d lið.

Svipað með ccp líka meina mér hefur alltaf fundist þessi ira/dcap sameining hafa verið eintóm steypa , DCAP og IRA fín bara svona .. sem sitthvort liðið.
Jájá ég veit að ccp-x er IRA-A eða whatever en meina þetta er allt CCP..

þetta er að fara útí svipaða sálma með nef og evil þótt að þar sé kannski ekki alveg sama úrvalsliðið frá byrjun til enda.

Einna helst eru það kannski ASNI sem eru svona spútnikkarnir þessa dagana en komu mjög á óvart á síðasta skjálfta, en það virðist bara vera einhver tight grúppa sem keppir ekki saman t.d undir ASNA á icsn.

Þetta er farið að minna á einhverja glóbalæsesírengu eins og Microsoft, bara éta allt upp og eiga það, svona til vonar og vara.

Eru menn orðnir svona þreyttir eða bara hreinlega nenna ekki að leggja vinnu í það að stofna ný lið og fá bara vini sína með sér í þetta?

Jájá ég veit að það eru stofnuð “ný” klön hérna á hverjum degi nánast en það eru ekki beint lið sem ég sé fyrir mér að standa í love eða ccp eða neinu þar fyrir neðan.

Þetta er eflaust hálfgerð steypa í svona heilum lestri en hei ég er þreyttur og er að reyna að koma þessu einhvernveginn frá mér.
Ég var ekki að reyna að móðga neinn með þessum pósti né að gera einhverjar mega árásir á lið hérna. Vinsamlegast ekki flame-a mig til dauða yfir þessum pósti. =)

<br><br><a href="http://www.clannef.com">[-=NeF=-]</a></a><marquee direction=“right” width=“100” height=“20”>
<font color=“blue”>
<B><font color=“red”>S<font color=“black”>ome<font color=“red”>0<font color=“black”>ne</B>
<br /