Undanúrslit winnersbracket, 2.sæti á Kísildals Lanmótinu eða #teamcelph gegn gríðasterku liði j0kers og ru manna #rugaming-

celph eru með einn sterkasta, talinn af mörgum næst sterkasti roster landsins og náðu 2.sæti á Kísildals LANmótinu. Í dag munu þessir 5 spreyta sig:

celph|fearless - Fearless er leaderinn í celph, hann er límið í liðinu og sér um allt sem við kemur claninu fyrir utan ströttin. Hann er awpinn í liðinu.
celph|kaztro - Planerinn og maðurinn sem heldur stuðinu uppi og peppar menn áfram, sami gaurinn og fékk join í gríðasterka lið icegaming þegar að það lið leið undir lok.
celph|zyth - Þarf ekki kynningu, bara simply náungi sem fer eftir plönum og teamplayar. Zyth er búinn að vera í flestum bestu clönum landsins og er þekktur fyrir það að vera suddalegur með deagle en er annars bara svona basic spilari.
celph|sack - Óeðlilega hittinn og er clutcher liðsins, á það til að taka á skarið og drepa alla á einhverju bombsite bara uppúr þurru eða vinna töpuð round þar sem að bomban er dauð og lítill tími eftir og maður er 1 vs. 3 og í terr, clutcher.
celph|spencer - Maður með rosalega reynslu að baki og hefur verið í liðum á borð við rws og sweet og er bara venjulegur teamplayer til að fullkomna kjarnann í celph liðinu.

Leader celph segir nú bara “Gl hf”

rugaming er eitt af sterkari liðum landsins enda náði það 7-8 sæti á kísildals LANmótinu. Þeir eru með þéttan roster þar sem að enginn skarar eitthvað ofur fram úr neinum öðrum og teamplayið er það sem að skiptir mest máli

- ru j0ker - - Fannar “j0ker” er maðurinn sem að stendur bakvið rugaming teymið, hann er leaderinn, planerinn, pepparinn og hann fraggar líka eins og motherfucker og margir þekkja hann sem VON|j0ker.
- ru Luffy - - Annar úr VON crewinu, hann er bara teamplayer og fylgir plönum og er bara basic player.
- ru Surgur - - Mjög reyndur spilari, búinn að vera í mjög mörgum clönum og búinn að spila mjög lengi og reynist góður þegar að það þarf á honum að halda og getur bjargað heilu roundunum ef ekki heilu scrimmunum.
- ru Stalz - - Einn sá hittnasti í bransanum í dag, þetta er svona clutcher, svona maður sem tekur á skarið þegar að enginn annar þorir því eða getur það, hann getur unnið round og leiki upp á eigin spýtur.
- ru xrebz - - Þéttur leikmaður, svona basic teamplayer eins og Luffy, fer bara eftir plani og sinnir sinni skyldu vel með því að drepa reglulega. j0ker uppgvötaði hann þegar að hann var flakkandi á milli óþekktra liða og hjálpaði honum að verða topp leikmaður.

Leader rugaming svarar vel á móti og segir hvorki meira né minna en “hf gl”

RU VS CELPH SPENNO
EKKI STAT?

Bætt við 25. júlí 2007 - 23:05
satt