Ég vill nú bara þakka öllum þeim sem biðu og biðu í mestu þolinmæði á laninu þrátt fyrir erfiðleika með rafmagn og net á sínum tíma.

Þið voruð allir æðislegir og ekki vottur um neinn óþarfa kjaft.

Eftir þetta held ég að allir séu reynslunni ríkari um allt sem tengdist þessu og þrátt fyrir mótvind þá held ég nú að við hættum ekkert þetta náði þó að enda vel.

Vill helst þakka Binna jiNx fyrir óendanlega mikið af knúsum sem hjálpuðu mér mikið.

Þó svo að þetta hefði getað farið betur þá held ég að flestir ef ekki allir löbbuðu út með ágætt bros á vör og sáttir,Er þá ekki bara málið að setja annað svona lan og læra af mistökum ?

Svo þakka ég öllum liðum sem ég spilaði á móti þau 5 held ég fyrir frábæra leiki og frábært að hitta ykkur alla.

Svo bara vona ég að allir hafi verið sáttir með mitt starf þarna sem stjórnanda og hjálparhellu.

takk takk takk ..

Kv.miRo
vúlevúú