Halló.

Vildi bara benda fólki á að nú hafa 120 manns skráð sig á LAN mótið enn er því tækifæri til að skrá sig og eiga skemmtilega helgi. Þó þetta sé auglýst sem CS mót þýðir það ekki að þetta sé einungis til að spila CS. Hægt verður að spila aðra leiki þarna eins og C&C, StarCraft, (WoW(ekki staðfest)) og þessvegna Sims.

Það er frábær aðstaða þarna, ef þú ert svangur/svöng þá er sjoppa þarna svona 20 metra í burtu sem selur allskonar drykkjarföng og ljúffengan mat. Einnig er seldur þar góður morgunmatur eins og rúnsstykki eða skyr.

Svo ef þú ert leiður á að vera í tölvunni geturu skellt þér á skauta sem eru á hæðinni fyrir neðan (kostar eitthvað smotterí).

Svo ég hvet ykkur öll sem hafa áhuga á tölvuleikjum að kíkja því þetta verður algjör veisla.

Skráning fyrir einstaklinga fer fram hér: http://lanmot.hax.is/klanleysa/

Og fyrir lið hér: http://lanmot.hax.is/skra/
"Choose a job you love, and you will never have to work a day in your life." -Confucius