Já gott kvöld.

Vill byrja á því að minna fólk á skráninguna fyrir mótið, sem gengur mjög vel, hún er hafin á http://lanmot.hax.is þökkum Sgi- og hax.is kærlega fyrir það, og að sjálfsögðu er hax bannað á laninu þó að hax.is sé velkomið ;)

En já eins og ég sagði þá er skráningin að ganga mjög vel, opnað fyrir skráningu fyrir rúmlega sólarhring síðan og nú þegar eru 67 manns skráðir, þ.e. 12 lið, þannig hver fer að verða síðastur.

Það verður alveg örugglega nett speccroom og ekki af verri endanum, heldur verður það Garfield sem mun sjá um það og er með mikla reynslu í að skemmta fólki af skjálfta í hinu sama.

Þarf að sjálfsögðu ekki að nefna að það verða hreint og beint MÖGNUÐ verðlaun verða í boði frá Kísildal, endilega kaupið ykkur eitthvað aukadót í tölvuna ykkar, búðin er staðsett í Álfheimum 2 (við gatnamót Langholtsvegar-Álfheima) og kíkið við á síðunna þeirra www.kisildalur.is fullt af flottu dóti þar.

Svo má einnig benda fólki að kíkja á #official.lanmot

Og þið litlu dúllurnar sem eruð yngri en 16, veriði vissir um að mega fara út :*

En það verður ekki meir að sinni, Kísildalur rokkar, þú rokkar og við mætum auðvitað öll!