Ég á í vanda með css, oft þegar ég er búinn að vera í svona 2 mínútur á server þá frýs leikurinn alltaf og koma svona litlir rauðir stafir í efra hægra horninu sem stendur “WARNING : connection problem” og ég dett útaf eftir svona hálfa mínútu :(

Ég er á simnet serverunum og þetta gerist þar.

Ég er ekki með kveikt á neinu sem tekur mikið á netinu, ekki torrent eða neitt þannig, bara steam og msn og stundum vent.

Svo alltaf ef ég er með kveikt á torrent þá kemst ég ekki inná neinn server eða þá að ég kemst á server en kemur svona connection problem eftir nokkrar sekúndur

Er ekki hægt að gera eitthvað í þessu? þetta gerist ekki með neinn annan leik (cod2 og þannig) þetta tengist steam mjög líklega

Hjálp? :)