Ég lenti áðan í því að vera inni á íslenskum server og var sparkað þaðan eftir svona tvær mínútur fyrir að nota nafnið [Thespian]Romeo. Snillingurinn sem tók upp á því var að spila undir nafninu D-U-D-E S-eitthvað. Hann sagði að ég væri að STELA nafni frá einhvejum öðrum. Fyrir það fyrsta þá veit ég ekki til þess að einhver hafi einkaleyfi á nöfnum úr bókum eftir Shakspeare og svo hefði ég gjarnan viljað fá tíma til að skipta um nafn eða allavega svara þessu. Og ef hinn Romeoinn (sen að mér skilst spili með annað clantag fyrir framan nafnið sitt) vill að ég skipti þá er það bara í fínu lagi mín vegna. En þatta fannst mér too much satt að segja.

Helvíti hart eða er ég eitthvað að misskilja þetta?

Cry “Havoc” and let slip the Dogs of War!
Julius Ceasar.
“Only the good die young, and I seem to be getting pretty old”