Kæru cs-arar!

Ég vildi vekja athygli ykkar á merkilegum atburði næstkomandi helgi. Þar verður cs gert hátt undir höfði á myndlistarsýningu í einu af virtari galleríum landsins, Gerðarsafni í Kópavogi. Einn úr vorum hópi, [GGRN]Castor Pollux, sem jafnframt er einn af viðurkenndari myndlistarmönnum landsins, hefur leitað viðfangsefna í Counter-Strike og bera myndverk hans dám þess.

Á sýningunni, sem opnar á laugardaginn klukkan 15:00, mun m.a. að finna portrett af cs-stjörnum á borð við Spaz, DaGuar, Rocco$ og jafnvel trompettmorðinginn |{nifah fær mynd af sér. Allir cs-arar, sem jafnframt hafa áhuga á myndlist, eru hvattir til að mæta.

Rooster

Ps. Nánari umfjöllun má finna á ggrn.org