Verð að tjá mig smá um þetta myndband því það minnir mig á leik sem ég spilaði með “DoA|” í gamla daga. DoA| þýðir “Dead on arrival” Og var splittaður hópur af gamla [.evil.] Ég var með nickið DoA|Scorpion- Í þá daga tók maður cs heavy alvarlega og var í svokölluðu lan húsi. DoA| liðið var þar alltaf saman með tölvunar sínar að spila. Þetta var leigt herbergi með 10mb link sem var mikið í gamla daga. Ég var á sama stað og þessi gaur í Inferno með awp. Nema ég vissi af manni uppá svölum. Ég setti miðið á, miðaði á stigan og notaði miðið til að klífa upp stigan. Ég reiknaði út svona um það bil hvar svalirnar væru bakvið þakið. Og miðaði, Skaut. HEAD SHOT !! Allt varð VITLAUST !!! Nema náttla okkar lið sprakk úr hlátri. Enn hinir beiluðu 1 roundi eftir. Mig minnir að það hafi verið eitt clan sem er enn til í dag, Enn þar sem ég er ekki viss ætla ég ekkert að nefna nein nöfn.

P.S. Leiðinlegast í heimi að það var ekki tekið upp.