Í gær vorum við að spila á Thor og þar var þessi spilari sem við höfum grunað lengi um græsku (Dynamic1) hann hefur verið efstur núna í rank á Thor.

Cisco fékk nóg eftir að hafa séð hann gera mjög dubious hluti og bannaði gaurinn. Eftir smátíma hringdi síminn hjá Cisco og þá var þetta náunginn sem grátbað um að komast aftur inn, lofaði að haxa aldrei aftur. Cisco sagði bara goodbye.

Stuttu síðar komu korkar hérna um að menn hefðu verið bannaðir út af engu. Hálftíma síðar ca :)

En þarna viðurkenndi þessi spilari sök sína og hafði lengi komist upp með að haxa.

Spilar allavega ekki aftur á Thor á þessum account sýnist mér.

Svo sé ég hérna gaura sem eru að væla yfir að Vac sé að stoppa í að spila (það hlýtur þá eitthvað að vera að hjá þeim)…. segir sig sjálft.

Aðilar sem eru að gera Cheat/scan segja að 40-50% aðila sem komi í scann hjá þeim séu með forrit sem má ekki nota í CS, þannig að það eru helv. margir þarna úti að haxa.

Nú styttist í að Göngudeildin komi upp mönnum til gleði og ánægju, því að ég get lofað því að þar verður tekið á höxurunum ;)