Við vinnufélagarnir stunduðum það í síðustu viku að leika okkur í svona hálftíma í matartímanum okkar, þá bara á LANi. Spurning hvort einhver annar vinnustaður sjái sér fært að taka leik við okkur, ég veit af því að mörg fyrirtæki eru með duglega CS spilara (TVAL, HATE og LOVE komu frá Tæknival og Símanum í dentid ef mér skjátlast ekki, og VIT að sjálfsögðu frá Hugviti).

Það væri sumsé gaman að taka eins og eitt hádegislan í viku. Þetta krefst þess hins vegar að server sé laus og læsanlegur, og að báðir aðilar geti mætt með full lið (6-7 manns) á réttum tíma, þar sem að maður hefur bara svo mikinn tíma í hádeginu.

Áhugasamir sendi póst á mig, <a href=“mailto:augustus@hugi.is”>augustus@hugi.is</a
Summum ius summa inuria