Loksins, loksins! Ekki neitt voðalega nýjar fréttir, en ég er búinn að vera í smá CS-fríi undanfarið… og ég varð verulega hissa þegar ég hoppaði inn á Fortress server og uppgötvaði að de_survivor og de_storm væru komin inn!

Þessi borð eru einstaklega góð tilbreyting frá t.d. de_dust, sem að mínu mati er búið að nauðga ansi mikið upp á síðkastið.

de_survivor er kannski einum of stórt, en mjög vandað og skemmtilegt. de_storm minnir mann á de_dust og de_cbble blöndu, en þetta borð er einstaklega skemmtilegt og verður aldrei ruglandi. :)

P.S. Ég er ekki enn búinn að prófa de_torn þegar ég skrifa þetta…<br><br>Royal Fool
“You've been Fooled”