[Þegar ég hafði hugsað mér að skrifa þetta hér á Huga komst ég að því að það er enginn Half-life korkur, þannig að ég setti þetta bara hér.]

Þannig er að ég ætlaði að búa mér til spes veggjakrot til að úða á veggi mappanna í Half-life til að sá brosi í varir mótherja minna. Ég vildi vera sniðugur og hafði texta á því. Þegar ég fór síðan að prófa það sá ég, mér til undrunar, að það skiptir máli í hvaða átt veggurinn snýr sem maður málar á. Stundum snýr það rétt, en ef ég síðan úða á vegginn á móti verður krotið ‘speglað’ sem er auðvitað mjög slæmt ef að það eru stafir í því.

Vonandi hefur þetta verið lagað í einhverjum patchinum.