Jæja, CS 1.3 komin út og lofar ágætlega.

Það var hins vegar afar dapurt í gær þegar að þetta kom út og margir voru búnir að installa uppúr kl. 18:00 að aðeins ISNET (nú Fortress.is) serverarnir voru uppfærðir á réttum tíma.

Reyndar má ekki gleyma Fightclub serverunum sem uppfærðu líka sómasamlega … bara fáir sem vita af þeim serverum - og aðeins annar server af tveimur hjá þeim virtist aðgengilegur.

ISNET D lá svo niðri þannig að í raun voru aðeins 3-4 serverar sem voru að keyra þetta fyrir “almenning”.

Zlave hafði talað um fyrr í vikunni að búið væri að tryggja að séð yrði um uppfærslu á Simnet fyrir hann, þar sem hann væri í veiðiferð, en þeir aðilar virðast hafa gufað upp sem áttu að sjá um þetta.

Nú eru að verða komnar 20 klst frá uppfærslu og enn bólar ekki á uppfærslu á Simnet-serverum - og engar skýringar hafa fengist og enginn sést, eða gefið sig fram sem þekkir málið.

Ég spyr því bara í fáfræði minni hvað sé á seyði? Er uppfærslu að vænta þannig að maður þurfi ekki að bíða í óratíma í kvöld eftir að komast inná server?

Með vinsemd og virðingu,

Mr. Dover

- God has a hard-on for NeF -