Gott kvöld góðir hálsar.
Eins og þið getið lesið hér í titlinum þá höfðar þetta til svindlara (e. haxerar) og leiðinda.
Það vill það skemmtilega til að ég spila cs (nohh!) og þá aðeins á einum public server, Mania.
Og eins og langflestir vita þá er mikið röfl og væl um svindlara, sem skapar því leiðindi.

Og oftar en ekki eru það útlendingar að hacka.
Ég hef áður gert þráð um þetta, og ætla að reyna nú aftur.

Þannig vildi til að ég var bara í bullandi fýling í kvöld á Mania að spila de_inferno kominn með ágætis score og svona .. og er bara í góðum fýling þarna að skjóta á Counter-Terrorista hægri vinstri, og svo kemur einn inn á serverinn með hátt ping, hét eitthvað Teabag & Teapot eða álíka, man ekki hvað.. og nei sko ég hugsa strax, frábært hacker kominn, og viti menn… BOOM HEADSHOT BOOM HEADSHO! eeeeeendalaust .. ég fer á #Counter-Strike.is og tilkynni þeim þetta fyrst bara í rólegheitunum og var ekkert að pirra mig yfir því að hann væri þarna inná að skemma fjörið heldur drep ég hann bara, auðvitað tók ég bara þetta suddalega dgl single.
Og þá fyrst fór hann að fara í taugarnar á mér, hann nickstealar mig helvítis fíflið!
Ég fer frekar ólmur og pirraður aftur á #Counter-Strike.is og frekar pirringslega “bið” um admin (frekar frekjulega) því hann var að nicksteala mig með örlítinn mun á nicki, samt klárlega að hann var að nicksteala mann (Pantheon ‘ IbbiLitli vs. Pantheon ’ IbbiLtilii getið ykkur til um hvor væri hvað..) og hann auðvitað var þá búinn að speedhacka, wallbanga, og nota aimbotinn alveg á milljón í svona 15 round, enginn admin kominn…

Þar sem ég var vongóður um að admin kæmi á endanum því þeir eru nú yfirleitt aktívir þó svo ekki sé hægt að koma í hvert einasta skipti .. þá var ég ekkert að recorda hann.

En að lokum þá skiptist um map, de_aztec kemur og þá er enginn hacker lengur, allir voða happy, og þá kemur Andri - Arete, haddi og spitsign, ALLIR í einni runu, frábært það :)

Þessvegna spyr ég, þar sem hackerinn var klárlega ekki af íslensku bergi brotinn, afhverju er ekki sett password á Mania? eitthvað í þá áttina sem er á Scrimserverunum, kannski mania afturábak (ainam) og þá væri hægt að hafa hér á upphafssíðu /hl niðri til hægri þar sem nú nýlega er kominn upp serverlisti með ip addressum og fíneríi að hafa pw líka þar.
Það myndi sporna við fleiri erlendum hackerum, þar sem maður ber lítið á íslenskum hackerum nú til dags (á íslenskum serverum allavega) þó þeir séu nú allmargir.

Þessvegna langar mig líka að vita, frá ykkur sem spilið mania jafn mikið, minna eða meira á mania og ég, hvort eruð þið hlynnt eða á móti þessari uppástungu?