Jæja nú hef ég fengið nóg, þetta er orðið MJÖG MJÖG þreytt.

CS:S er fínn leikur og getur verið mjög gaman að taka 1 map eða 2. En það sem er alveg óþolandi eru littlir krakkar sem eru greinilega að byrja í þessum blessaða leik og gera sér ekki grein fyrir því að það eru til menn sem eru bara mun betri en þeir í þessum leik, og í staðin fyrir að æfa sig bara og verða kannski betri en þeir þá er farið að gráta.

Jú jú sumir segja iss taktu því bara sem hrósi ef einhver er að ásaka þig um “hax” jú jú maður gerir það kannski fyrst en svo verður maður þreyttur á þessu væli.
Því þetta smitar, einn pjakkurinn byrjar “gmg þú haxxxxar svo mikið ég læt banna þig” þá fara hinir að hugsa “humm hann er nú með allt of hátt score þetta er öruglega satt”

Og áður en þú veist þá eru 3-5 krakkar farnir að væla í þér.

Tilgangurinn með þessum pósti er að fá fólk til að hugsa aðeins.

EF ÞÚ HELDUR AÐ EINSTAKLINGUR “haxi” þá skaltu gera status í console, taka niður steam id hans, því næst recorda hann og skila þessu til admins, síðan getur sá sem hefur vald til þess bannað hann ef hann er í raun og veru að “haxa”

Gerið það fyrir mig hættið þessu væli og æfið ykkur bara.

Og bara ferskasta dæmið um einn af þessum krökkum
“Bangsiimon-” STEAM_0:0:5051774 29:21 78 0 active

Farðu og æfðu þig…..

KK

Vicarious