Ég fór svona að hugsa til baka til gamalla tíma og fór að hugsa um þegar CS Idolið var haldið fyrir allnokkrum árum. Þetta var skemmtileg keppni og myndi ég vilja halda hana aftur.

Ég er ekki kominn með neina dagsetningu en þetta yrði þá bara fljótlega. Ég vildi bara spyrja ykkur álits á þessu og athuga hvort það væri einhver áhugi fyrir þessu?

Er einhver spenna fyrir þessu? Ég myndi að sjálfsögðu ekki taka þátt. Ég yrði þá í dómarasætinu. Hvað segið þið um þetta? Er einhver áhugi fyrir þessu og hverjir hér myndu taka þátt?
Gaui