Þetta er vandamál sem ég hef verið að reyna að leysa núna í nokkra daga en hvað sem ég reyni og leita á mapping síðunum þá tekst mér ekki að finna lausnina.

Mig langar að setja inn tree/bush sprite inn í borðið mitt og nota Worldcraft 3.3, málið er að það er ekkert mál að setja inn sprite sem snýr alltaf í átt að leikmanni, en mig vantar að gera sprite sem snýst EKKI, þ.e. runnar og því um líkt.

Þetta hlýtur að vera einhver stilling í properties á Env_Sprite en ég finn hana bara ekki, veit einhver hvernig á að koma þessu í gagnið?

með fyrirfram þökk
Xbox360 Gametag: Shmeeus