Já ég spyr ert þú góður með þessum stóra græna? eða eins og við köllum hann Awp eða Wappi? Jæja ef svo stendur á að þú sért það eða eigir klippu með þér vera að gera eitthvað verulega ljótt þá er ég kominn með myndband í gerð sem mér vantar nafnið á
Ég bað EzikeL sem er í Chillside að nota nafnið á movie sem hann gerði, sem einmitt kveikti þessa hugmynd hjá mér en myndbandið sem hann gerði “AWP - Vital Weapon” ég bað hann um að fá að nota nafnið og bara bæta við “Icelandic Edition” en kappin vildi það því miður ekki en ég fékk samt leyfi á að nota hugmyndina bara ekki nafnið :)

Þá er þessi saga búin og komið af myndbandinu, hérna eru nokkrir punktar um myndbandið

- Ég notast við bestu gæðin sem er að finnna, eða allavegana ein af þeim
- Myndbandið verður c.a 6-7min að lengd eða styttra
- Ég vill fá einungis flott frögg, enda ekkert að drífa sérstaklega að klára, og ekki væri verra ef fræg nöfn mundu senda klippur með sér, en það er alls ekkert issue
- Myndbandið verður mjög effecta lítið í fragpart, nú? jú útaf ég er að highlighta flott frögg með AWP!
- Ég notast við sérstök model sem detail-a wappan verulega í freelook
- Ég nota ingame sound
- Ég ætla að nota bjarta liti en ALLS EKKI að of gera þá

Jæja þetta er svo sem allt sem þarf að vita, en þá spyrðu sjálfan þig “Hvernig kem ég fraggi á framfæri?”
Jú segjum að þú gerir eitthvað flott og átt það á recordi þá ferðu og skoðar recordið með því nátturulega að gera “Viewdemo -nafnið á demo-” svo finnur þú bara þitt fragg og skrifar einhversstaðar hjá þér Mín sem er í Viewdemo player, senst ef ég ætlaði að senda inn, þá væri góður readme svona

- spec ax shiNe
- Mín: 07:04
- Tek 4 á long í inferno og 2in1 einu sinni

Svona vinnubrögð við readme mundu auðvelda mér verulega mikið :)

Svo endilega sendið inn demo's og af ykkur með þessa gullnu byssu :)

Fyrir hönd almost extreme: productions; joig
idle @ #axproduction og plz ekki join/part, :)