Sælir cs spilarar nær og fjær.
Ég er nú einn af þessum “frístundaspilurum” sem er bara í vinaclani og spila mér til skemmtunar á pubblic og þess háttar. En mér brá snarlega í kvöld þegar ég var bara að spila eins maður gerir svo oft á kvöldin þá eru þrír í mínu liði að leika sér trufla meðspilendur sína með að vera utaní þeim með hnífin á lofti og því meira sem maður bað þá um að hætta því lengur héldu þeir áfram. Ég er nú engin byrjandi þó að ég sé nú ekki pr0 :) en þarna féllust mér nú alveg hendur.´

Ekki nóg með þetta heldur leið svo bara kvöldið þá kemur annar apaköttur inn á serverinn og gerir ekkert annað en að halda inni in-game voice takkanum og blása í mic-inn. Þá fór ég nú að hugsa, eru menn ekkert í þessu til að hafa gamann af þessu, þetta telst nú varla skemmtun, eða eru menn virkilega með svona brenglaðan humor??

Erum við að fara í hundana í þessum málum, ég skil nú alvega að þeir sem eru adminar eða rcon nenni nú ekki að hlusta á þetta væl endalaust en einhverntíman verður nú eð reyna að gera eitthvað í þessu. Það má ekki koma dust þá eru allir ct á spawni að skywalka.

Plz það mætti kannski laga þetta örlítið

Kveðja Vælubrók.
EvE er málið