Nú nýlega hefur klanið mitt verið að matcha dóldið en oft lent í vandamálum með að fá server, það er oft vegna þess að við höfum verið að taka scrim með 2 tíma fyrirvara eða eitthvað og oft eru þessir svokölluðu Server ADmins hjá isnet og simnet bara ekki við, og ég er ekki með gemsa númerið þeirra(enda er það soldið mikið áreiti ef það væri birt..)

Hvernig væri það að einhver duglegur heimasíðuforritari og þeir sem hafa umsjón með ISnet,Simnet og ICSN lánsserverunum(match ofl) mundu setja upp svona síðu einhverstaðar þarsem mögulegt væri að panta server bara í gegnum síðuna.

T.d
“ég fer á þessa síðu og þar sé ég hvaða serverar eru fríir(serverar sem þegar eru pantaðir fá rauðan púnkt hliðiná sér) klikka t.d á Simnet Match server 2 og þá fæ ég upp svona síðu í framhaldi af því, hvað ég vilji fá hann lengi lánaðann og hvenær þegar ég hef valið það og ýtt á OK, fer ég á næstú síðu og fæ Rcon pass og Server Pass og þá er ég búinn að panta server.
Svo ef einhver annar fer inná síðuna og reynir að panta sama server aðeins á eftir mér þá getur hann bara valið tímann og og fær svo sent í email þegar Rcon og Server pass, klukkutíma fyrir tímann sem hann þarf serverinn”

Ég veit vel að það nennir enginn þessu sennilegast, en samt, it's a thought.