Vá.. ég á varla orð til að lýsa hamingju minni yfir könnuninni sem stendur yfir núna - Að vera vera tilnefndur “Skemmtilegasti Admin á huga” er án efa toppurinn á tilverunni.

Þetta er búið að vera strembið og erfitt, og ef ég segi ykkur bara satt og rétt frá, þá er þetta búið að taka mikið á litlu sálinni minni.

Ég ætla að vera orðstuttur og þakka nokkrum; Sá sem sendi inn könnunina fær frábærar þakkir, mér líður svo vel að vera samþykktur í þessu samfélagi! Þeir sem kusu mig fá auðvitað bestu þakkirnar, ég hefði ekki getað gert þetta án ykkar og eru þið öll æðisleg!

Það liggur augum uppi að ég er besti admininn á huga.is/hl sem hefur aldrei verið!

Takk aftur!