Datt í hug að einhverjum langaði að vita þetta, ef ekki þá er mér alveg sama, og sleppið vælinu

En já, clanið EYEballers eru hættir. Eftir að þeirra fjórði spilari, cArn hætti vegna in-active leika og það að liðið hafði engin framtíðaráform. Tilkynnti stjórn EYE að þeir eru ekki hættir, en þeir eru in-active í óákveðinn tíma. Þetta skilur þá Zad, archie og Guden eftir í engu liði og er spurning hvað þeir munu gera.

EYE er einna helst þekktast fyrir að vinna CPL og lenda síðan í öðru sæti næsta CPL.

Þar sem að þeir eru orðnir in-active, hafa þeir sagt sig úr öllum online keppnum. Þar á meðal Eurocup en þeir voru einmitt í riðli með seven. Minnkar þar um eitt heimsklassa lið í riðlinum hjá seven.
,,,,