Sælt veri fólkið.

Ég vissi ekki hvar ég átti að skella þessu þannig að ég hélt að menn sem lesa þessa korka vissu kanski hvað ætti að vera og bið ég admin því um að eyða þessu ekki :)

Þannig er mál með vexti að dkt músamottan mín er orðin frekar skítug og ógeðsleg enda búin að upplifa margt, t.d. 3 skjálfta, mikið magn af gosdrykkjum, pizzum og öðru góðgæti. Ég fór því að velta fyrir mér hvernig væri best að þrífa mottuna þannig að hún skemmtist ekki eða verði þeim mun verri eftir.
Endilega deila því hvernig þið þrífið ykkar mottu þ.e.a.s. ef þið eigið dkt pad á annað borð.

Með von um góð svör og ekkert kjaftæði :)