Hérna kemur fjórði korkurinn um þennan rosalega leik sem átti sér stað laugardaginn 5.nóvember. Rex vs Duality í gamers.online mótinu í de_nuke.

Rector sem er í duality hafði ekki grun um að hann væri að gera eitthvað sem væri bannað þegar hann var með awp í íþróttahúsi og var við kassann sem er one way spam spot eða að það er bara hægt að skjóta í gegnum hann ct meginn en ekki t meginn. Hann var oftast hliðina a honum til þess að geta skylt ser fyrir ógnandi byssukúlunum sem komu frá rex.

En í einu roundi fór hann alveg bakvið hann og ctrl jumpaði eða hoppaði mjög litið bara til að kikja rétt svo og skaut svo í gegnum kassann. Svona tók hann einn gaur en beytti hann þessari aðferð oftar en án árangurs.

Uppúr þessu kom mikil umræða um hvort að þetta væri bannað eða ekki og komst admin Gamers.online að þeirri niður stöðu að þetta væri bannað og verður þá rematch á þriðjudaginn klukkan 9:00.

Þeir sögðu að þetta væri galli og í clanbase reglunum segir að það megi ekki nýta ser galla. En spurningin er : Er þetta galli, sumir vilja meina að þetta se galli en enn aðrir segja að þetta sé ekki galli og er þetta leyfilegt. Eg hef gert mjög mikið til að komast að þeirri niðurstöðu að ég finn EKKERT sem bendir til þess að þetta sé galli.

Þetta hefur verið notað á Cpl og í Cal-invite og hafa adminar á því móti ekki sagt að þetta sé bannað og annað vil ég benda á að á cpl síðunni sem er www.thecpl.com kemur fram að þeir eru bunir að gefa út mop sem eru ekki með flashbug sem er galli í de_nuke. Þá vil ég spurja af hverju er ekki eins mikil umfjöllun um þennan kassa og þetta flashbug? Er það útaf því að þetta er ekki galli, gæti verið.

Mér finnst að crasher verði að sanna að þetta sé galli því að við erum einungis að taka rematch því að hann segir að þetta sé galli en adminarnir í cal eða clanbase og á cpl segja að þetta sé ekki galli. En þá spyr kannski einhver: Ert þú buinn að finna texta sem stendur að þetta sé ekki galli? Nei ég er ekki buinn að finna þann texta en ef cpl, cal eða clanbase tala ekkert um þennan kassa og nefna þetta ekki í reglunum þá er þetta ekki galli.

Núna er ég buinn að segja minn hluta af þessari deilu og mig langar að sjá hvað ykkur finnst og hvaða skoðanir þið hafið. En ég bið ykkur ekki koma með : Þetta er galli og hafa svo engar staðreyndir. Komiði með góð svör og einhver rök fyrir svari ykkar og engin skítköst takk. En ég tek það fram að ég er ekki að reyna breyta ákvörðun admina í gamers.online, mig langar einungis að komast til botns í þessu máli svo það þurfi ekki að deila svona aftur um þetta í framtíðinni.
duality|dabb1