Sælir og sælar

Ákveðið var í gær að leggja niður Counter-Strike deild Team-x17 í óákveðinn tíma, kannski mun hún opna einhverntíman aftur ef áhugi verður fyrir því, og þið munuð alveg örugglega sjá einhverja af okkur að public hórast.

Ástæðan fyrir lokun deildarinnar er vegna þess að það er búin að vera mikil hreyfing á leikmönnum innar þessarar deildar hjá okkur og enginn stöðuleiki náðst eins var hjá okkur einu sinni, menn hafa verið að hætta og koma aftur og hætta. Gömlu memberanir voru farnir að horfa á önnur mið og fannst okkur of mikið að vera heila deild með nýjum andlitum. Einnig hafa nýjir leikir tekið sinn toll af cs deildinni og eins flestir vita þá erum við með css og bf2 deildir sem munu vera starfandi áfram.

Team-x17.cs vill þakka öllum þeim leikmönnum sem hafa spilað með okkur og á móti, við viljum þakka öllum pimpunum fyrir góða skjálfta og öllum þeim leikmönnum sem hafa sýnt metnað og haldið góð online mót. Einnig vill ég þakka öllu cs samfélaginu fyrir að þurfa þola Noel svona lengi, en þið eruð alveg örugglega ekki laus við hann samt sem áður.

Að lokum vill ég þakka x17.IsoTonic fyrir sinn tíma hjá Team-x17, en hann hefur ákveðið að hætta cs og css spilun.

GG´S strákar og stelpu