Ég á ekki orð.
Fór að spila áðan í fyrsta skipti í langan tíma svona snemma og ég er hneykslaður. Er þetta virkilega svona hugsaði ég með mér þegar ég sá menn rífa kjaft og kalla hvern annan fávita og flooda “farðu í counter” eða eitthvað líkt því.

Hvað í andskotanum halda menn að þeir séu?? Þó að einhverjir vinir séu á sama tíma á server þá er það ekkert sjálfsagt að þeir geti hótað mönnum öllu illu ef þeir fara ekki í hitt liðið eða kalla á vote um að kicka viðkomandi.

Ég vil benda mönnum á að ég líð svona lagað ekki og ef ég sé þetta aftur þá verða viðkomandi bannaðir hið snarasta.

zlave