Málið er að Counter Strike málin hér á Íslandi hafa þróast í eina áberandi átt, það er að segja að meðalaldur CS spilarar á klakanum er núna að sveima í kringum 14 árin. Fyrir 3 árum var þetta öðruvísi.

Fyrir þremur árum var meðalaldurinn hér ef til vill um 17 - 20 ef marka má gríðarlegar herdeildir [.Hate.] og stórar meðLimastærðir [.Love.] sem og öll hin öflugu klön landsins. Nú er gott að benda á það að þið verðið að sjá þetta í samhengi, því auðvitað voru ekki meirihluti KjAnnNNnNnNNespilara landsins fertugir heimilisfeður.

Svo eru auðvitað aðrar ástæður sem gætu orsakað þessa rýrnun í okkar fyrrverandi lifandi og blómstrandi counter-strike spilara. Allar rósir deyja nú einhverntímann. Þessi leikur er búinn að vera lengi að, hann er búinn að veraá toppnum hér á Íslandi lengi vel. En hinir rótgrónu og gamalþekktu spilarar Íslands sem eru orðnar hálfgerðar goðsagnir (sbr. 13 ára pjakkur á public sem sér Zombie kallinn hunta hausa og missir fóstur). Þar af leiðandi hefur liðum í toppbaráttu á klakanum fækkað, og þá meina ég GÍFURLEGA.

MurK, ccp, SiC, Drake, Hate, Love, Dc, VON, DON, mod, Adios, NeF, GGRN, Pray, Synergy, Dpz, IRA, DCAP, ASNI, UN, GOTN, DeWalt, evil, það er hægt að telja ENDALAUST …. öll þessi stórklön hafa á einn hátt eða annan keppt í stórum leikjum þar sem spec roomið gjörsamlega pakkaðist og eftirvænting óx í mönnum, svitinn bogaði af ennum og pollar mynduðust í öllum skorum líkamans! Vissulega er það á kristaltæru að einn eða fleiri hafa gegnt lykilhlutverki í fleiri en tveimum ofanverðum klönum. Ef þessi klön eru ekki horfin á braut þá er glansinn búinn að skrapast af í áranna rás.

Það eru ef til vill ekki fleiri en 2 eða 3 ákveðin lið sem verma alltaf toppsætin. Óþarfi er að nefna nöfn, það er alveg á hreinu. Ég segi útskýringuna vera þessa, að krakkarnir séu byrjaðir að sækja mun meira í þetta en þeir gerðu hér áður fyrr eftir aldarmótin (þótt að ég hafi nú byrjað að spila rétt 12 ára). Einnig er bróðurpartur reynsluboltanna í bransanum horfinn með vindinum.


Ég myndi vilja sjá sterkustu klön landsins í dag leysast upp og mynda gömlu góðu liðin sem gerðu counter strike samfélagið af því sem það var hér áður fyrr …


DRAUMKENNT!