Einsog gerist og gengur heyrir maður feitar sögur af því að hinn og þessi séu að svindla. Sannleiksgildi þeirra er yfirleitt mjög misjafnt og óverulegt - alltjent heyrir það til undantekninga að menn séu húkkaðir opinberlega fyrir svindl.

Núna undanfarið hafa þessa sögur verið að færast í aukana og ótrúlegustu menn orðaðir við Wallhack og Aimbotta.

Ég á svona frekar erfitt með það að trúa því að menn sem eyða mikklum tíma í CS séu að því til eins að fragga sem hæst og fá klapp á bakið fyrir að standa sig vel á iFrags.

Einsog ég segi þá trúir þessu svona takmarkað en er ekki mál að fara setja Punkbuster aftur á amk einhverja servera - Eða:

Gerir PB ekkert gagn?!!!

Að mínu mati er ekki þörf á þessari ummræðu aftur heldur nauðsyn.

Það er vitað að þeir sem hafa ákveðnar týpur af skjákortum “geta” wallhakkað hægri vinnstri sama hvað PB líður og bíður. Eflaust er minna um að menn noti Aimbotta - eða hvað?

Ég myndi gjarnan vilja fræðast meira um þessa hluti og þá hvort þetta standi til bóta á einvern hátt - með nýju update-i eða hvort PB menn séu með einhver ráð.

Hilsen
[VON]Heruli


es. Fæ ég engin stig fyrir þennan frjóa pistil?