Í dag er nokkuð skrítinn dagur fyrir mér. Í dag ákvað ég að ég myndi kveðja samfélag okkar tölvuleikja spilara og einbeita mér að öðrum hlutum svo sem námi, einkalífi, vinum, fjölskyldu og svo mætti lengi telja. Ég ætla ekkert að halda einhverja upptalningu hér til að láta ykkur leiðast :)

Það er sem sagt ekki flóknara en það, í dag, er þetta ævintýri lífs míns búið og eitthvað annað tekur við. Ætli manni finnist ekki bara eins og maður hafi toppað sig? Maður hefur unnið skjálfta nokkrum sinnum, eignast góða vini, gengið í gegnum frábæra tíma sem og slæma vissulega og allt hefur þetta þjónað einhverjum tilgangi og ég er sannarlega ánægður með að hafa upplifað allt sem ég gerði.

Allir þeir sem kynntust mér, hjálpuðu mér eða bara hvað eina sem kom mér til góðs eða jafnvel til ills þakka ykkir öllum kærlega fyrir, þið vitið allir hverjir þið eruð ég ætla ekki að telja upp einhver nöfn og gleyma svo fólki sem verður haugafúlt :)

Takk fyrir mig, þetta var sannarlega frábært tíma bil á meðan það entist.

Tölvu sala

Já, tölvan sem fór með mér á CPL UK, marga skjálftana og Lönin og hefur skotið ó fá headshotin ég get sagt ykkur það er til sölu! URL að neðan!

http://auglysinga.vaktin.is/showproduct.php?product=656
Bestur.