Alltof mikið hefur borið á tilgangslausum korkum hérna undir þessu áhugamáli (Counter-strike 1.6). Felstir sem skrifa þessa korka eru heppnir ef þeir fá einhver svör sem ekki eru skítköst á borð við : “éttu drulluna sem vellur út úr þér” eða “skjóttu þig, fæðingarhálfviti!”
Allir viljum við komast hjá því að lenda í þessu og að þurfa að úthella einhvern með slíkum fúkyrðum(sem þó þarf í nokkrum undantekningum).
Þeir sem ætla sér að skrifa kork sem hefur einhvað álíka takmarkandi gildi og umfjöllun á borð við : “Cs 1,6 >, =, eða < CS:S” eða “um x-nick” eða einhverja tóma þvælu, sem á einungis eftir að kalla á skítköst, þeim er vinsamlegast bent á að stofna rás á ircinu (gott nafn væri til dæmis : #Þvæla eða #tilgangsleysið eða #drepa-tímann-með-óáhugasömum-hlutum) og þeir ættu að hópa sig saman þar, jafnvel stofna tilgangslausa-clanið sem myndi þá aldrei skrimma, tala við aðra vitiborna menn né yfir höfuð eiga nokkur önnur samskipti en innbyrgðist þess hóps, þ.e. tilgangslausahópsins.

Vinsamlegast virðið skítkast okkar ekki að vettugi… takið mark á skítkastinu okkar og HÆTTIÐ í eitt skiptið fyrir öll að angra hugann.is með tilveru ruglsins sem leynist í ykkur.
Takk fyrir.

Ps. skítköstin eru velkominn á annan kork um annað efni frá öðrum aðilja um aðra aðilja. Þessi aðili er farinn í tíma. Takk fyri