Nú er Gamers.2tm keppnin farin í gang eins og flestir vita. Að mínu áliti hefur þetta gengið nokkuð vel og villulaust fyrir sig og ástæðan fyrir því að ég er að skrifa þráð hérna er sú að crasher er hættur sem admin í Gamers.2tm. Ég mun koma í staðinn fyrir hann og reyna að aðstoða ykkur eftir bestu getu. Það eru tvö atriði sem mig langar að koma til skila, annarsvegar það að öll úrslit og annað slíkt getið þið sent til mín eða lunatic. Hinsvegar að allir ókláraðir leikir verða að klárast fyrir næsta fimmtudag. Svo vil ég minna ykkur á ircrásina #Gamers.2tm og á næstunni mun lunatic koma með þráð um hvaða lið eiga að keppa við hvaða lið.
TEAM420|amfetamin