Jæja, nú er tækifærið að spila á fínum innlendum server í nokkra daga.

Búinn að hlaða hann með fullt af flottum möppum, t.d.

sniper city fullt af lásbogum og fínum kamp-hreiðrum í 2 byggingum sem standa andspænis hvor annarri
bounce super trampolín, en líka fullt af fínu axjóni á jörðinni
king of the hill - á toppnum er fullt af flottum vopnum og heilsu / armor, en það er kalt á toppnum og ýmsir durgar sækja að þér

Einnig groupfour, water closet, factor, blood ofl. ofl.

Allt innanlands-dl og nýtir sér nýja bzip möguleikann í hl2dm, sem þjappar möppunum á server svo dl tími er bara 20-50% af því sem áður var.