Við í stjórninni hjá gamers.online höfum loksins tekið okkur til og gjörbreytt öllu hjá okkur. Héðan í frá verða engar gathers spilaðar í óákveðin tíma, í staðin höfum við ákveðið að einbeita okkur í því að hafa keppnir/deildir, bæði 5on5 og 2on2.

Hérmeð verða 2on2 keppnir á hverjum fimmtudegi, þar sem að öll skráning verður í gegn um mig svo að hægt sé að stjórna þessu sem best. Ég hvet alla til þess að prufa eina svona keppni og helst að skrá sig sem fyrst ef að þið viljið 100% ná sæti þar sem að þetta er bara einu sinni á viku fyrir 16 lið(32 leikmenn).

Deildirnar verða einnig í gangi á sama tíma. Það er enn ekki ákveðið hvort að það verði 6 eða 8 lið í hverri deild, en það er staðfest að það verða 3 deildir þar sem að 1 leikur er spilaður hjá hverju liði í hverri viku (liðin ákveða sameiginlegan tíma til að spila á).


Ég vil þakka öllum þeim adminum sem hafa hjálpað okkur við að halda gathers reglulega fyrir áhugasama, þið getið allir sótt aftur um að verða gather admin á ný þegar við setjum á stað gathers hjá okkur á ný.
Endilega komið á #gamers.2tm og taliði við ^crasheR^ ef að þið hafið áhuga á að taka þátt í einhverjum af þessum nýjungum.
#clan-oasis