Ákvað svona í gamni að koma með spurningu fyrir ykkur CS-spilarana þarna úti!

Hvað finnst ykkur vera besta músin til að skjóta hausa í kánternum? Þá er ég ekki að meina endilega þá mús sem þið notið akkurat í dag heldur meira hvað ykkur finnst sú besta sem þið hafið prófað á ferlinum!

Ég hef átt MS 1.1, MS 3.0, MS 4.0, mx510 enn held að mín uppáhaldsmús sé sú fyrsta, MS 1.1. Þessi litla hvíta 5 hnappa optical.. var með hana þegar ég byrjaði í CS og spilaði lengst af með henni.

Hvað finnst ykkur ?