Buffi kóngur setti inn á Counter strike korkinn tilkynningu um #Source.scrim, en mig langaði til að setja hana hér, þar sem þetta á kannski meira við hér.

Í gærkveldi var fjöldi spilarar um 50 manns og ekki nema 2ja daga gömul rás, sem ætti nú að segja ýmislegt um áhuga hjá mönnum á Source.

***********

Buffi segir:

Það er kominn tími á að virkja CS:Source á ircinu. Við þurfum að byrja einhverstaðar. Smellið ykkur inn á #Source.scrim og “ædlið”. Ætli það verði ekki sæmileg op-gleði svona rétt til að byrja með.

Það gefur auga leið að þarna er vettvangur CS:Source scrim-auglýsinga.

Þeir sem hafa mikla þörf fyrir því að reyna að drulla yfir þetta framtak eða CS:Source almennt eru vinsamlegast beðnir um að skrifa það niður á blað og troða því niður hálsinn á sér. Hlífið okkur hinum og sleppið neikvæðninni hér.

Vonast til að sjá sem flesta.