Já.
Eftir að hafa spilað source í núna nokkurn tíma, hef ég komist að þessu.
Hitboxin, já hitboxin, gera það að verkum að hinn venjulegi 1.6 spilari “fittar” ekki í leikinn í fyrstu. Í 1.6 þá er búið að fínstilla hitboxin mjög vel, en hitboxin í source eru hræðileg, sem og registerið.
Í sambandi við að skjóta í gegnum veggi, fyrst var ég ógeðslega pirraður að geta ekki skotið í gegnum flesta þá leiki sem ég gat skotið í gegnum í 1.6, en síðan hugsaði ég: “Í rauninni er þetta rétt… ég á ekki að geta haxað í gegnum 7cm þykkan vegg.”… ég gerði mér grein fyrir þessu í einu scrimmi þegar ég var ekki að ná að drepa kall sem var á short í dd2, og ég í neðralobby að drita á brúnina… það á ekkert að vera hægt. Aftur á móti eru líka gallar í þessu, t.d. er ekki hægt að haxa í gegnum litlu körfurnar sem eru uppá short, sem sökkar.
Source;
Kostir: Grafíkin betri, hreyfanlegir hlutir, betri “eðlisfræði” (hún gerir það að verkum að t.d. þegar þú kastar grensu þá lætur hún frekar eins og hún gerir í raunveruleikanum en í 1.6.
Gallar: Hræðilegt hitbox, ömurlegt register, ójafnvægi í byssum… (hagglarar og sumar sillyguns virðast vera ná að raka flest kill, Ak-inn er hræðilegur), soundið er ömurlegt (eins og maður sé að hlusta á hund hoppa um á engi) og einhvernvegin finnst mér eins og hreyfingarnar séu svo soft einhvernvegin - hálfvegis eins og þeir séu í vatni.