Hvernig væri nú að fá þessi dúdda sem eru að gera þessi “feiknalega flottu og VEL gerðu cs-video” fyrir frítt,til að setja saman eitt stykki video með flottustu fröggunum sem víkingar klakans hafa gefið af sér? Maður er að sjá þessi svo nefndu “superplayers 1-manekkihvað” og alltaf verða þau flottari og flottari, en væri ekki gaman að sjá eitt svona í þessum dúr, þessum frag-or-die fíling, bara töff frög, sem ég býst við að landinn búi yfir, sem væri öllum skellt saman í eitt stykki nett movie? Gætum jafnvel, ef viljinn væri fyrir hendi að halda svona contest um besta “ofurspilaramyndbandið” ef einhver gæti haldið uppi ftp þar sem hægt væri að senda inn movie og svo þeir sem kepptu gætu náð þar í klippur og sett svo saman að vild… svo væri kannski hægt að verðlauna flottasta video-ið út frá almennings kosningu.. :) bara svona hugdetta, þar sem maður er að lesa annan hvern dag hérna á huganum að þessir og þetta klan hafi verið að gefa út movie… og þessir séu betri en þessir í að gera movie. allavega, feel free to comment. :P