Í kvöld fara fram 3 frábærir leikir þar sem lið á borð við icegaming, shockwave, mTa, GOTN og tSt mætast. Þið getið séð mitt álit á liðunum og mínar hugsanir um úrslit leikja hér.



Kl 20:00

GOTN vs. tSt:

Bæði lið hafa verið að spila mjög vel upp á síðkastið þar sem sérstaklega gotn hafa komið mér að óvörum. Í mínum augum hafa þeir svo sannarlega sannað sig með tveimum stórsigrum yfir spears og ccpc meðal þess að hafa tapað 14-16 á móti bæði shockwave og mTa þar sem sérstaklega fyrrnefnda hefur verið að spila ótrúlega upp á síðkastið. tSt hafa einnig verið að spila frábærlega með littlum sigrum yfir rws og spears, en það sem kom mest á óvart voru 14-16 úrslitin á móti mTa. Þegar maður lítur á bæði lið sér maður frábæra leikmenn og frábæra liðsheild, en eins og GOTN hafa verið að spila upp á síðkastið trúi ég ekki öðru en að þeir sigri þennan. Ég spái littlum sigri fyrir GOTN.

Ég segi 17-13 fyrir gotn.


Kl 21:00

Icegaming vs. Shockwave:

Ef maður lítur á bæði lið sér maður nokkra bestu leikmenn landsins, þar sem sérstaklega ice hefur verið að bíta frá sér upp á síðkastið. Þó hefur shockwave komið mér á óvart með frammistöðum sínum, sérstaklega á móti mta þar sem þeir náðu að vinna með 22-8 sem er alls ekki lélegt á móti liði á borð við mTa. Icegaming hefur þó verið á toppinum lengi og eins og þeir eru að spila tel ég þá einfaldlega óstöðvandi, þannig að ég spái ágætum sigri fyrir spike og co.

Spá: 20-10 fyrir icegaming.


Kl 22:30

Icegaming vs. mTa:

Þetta eru ein bestu lið klakans sem mætast hér, en þrátt fyrir það er ice óstöðvandi í augnablikinu og teljast á pappír vera betri en mTa, sérstaklega eins og mTa spila í augnablikinu. mTa hafa verið inactive í langan tíma og þeir eru ný byrjaðir að spila aftur fyrir alvöru og það tel ég stóran part í þessum leik. Ég reikna með stórsigri fyrir icegaming.

Spá: 24-6 fyrir icegaming.



Ég tel alla þessa leiki vera þess virði að horfa á, þar sem mig persónulega hefur lengi langað til að sjá íce vs. shockwave. Það mun vera hltv og scorebot á öllum leikjum en vegna þess að leikirnir eiga að spilast á simnet serverum er ekki komið hltv á leikina, en þegar það kemur mun það vera sett í topic á #gamers.2tm. Það mun einnig vera scorebot á báðum leikjum ice. Óska öllum liðum góðs gengis :).
#clan-oasis