Heiðruðu Counter-Strikearar!

Við á [GGRN]Fréttum höfum þráfaldlega orðið varir við að margir sem spila Counter-Strike furða sig á undarlegum nöfnum sem sum klön hafa valið sér. Fréttastofan hefur því ákveðið að koma til móts við þessa þörf, þ.e. að varpa ljósi á hvernig þessi nöfn eru til komin. Eða: Sagan á bak við nafnið! Næstu daga og vikur munum við segja frá því hvernig það atvikaðist að klan heitir t.d. R7 en ekki R6 - svo dæmi sé tekið.

Eitt sérkennilegasta klanið… nei, nafnið segi ég, er vissulega [.Love.]. Leiki einhverjum forvitni á að vita hvernig það kom til þá er rakið að fara á http://anastasia.gagarin.is og svala forvitni sinni.

F.h. [GGRN]Frétta,

Roosterinn

Ps. Um leið og þökkum [.Love.]Cupid óskum við eftir upplýsingum frá öðrum klönum varðandi söguna á bak við nafnið. Senda má póst á heimasíðu GGRN. Með fyrirfram þakklæti.