Við hjá EJS erum að reyna að stofna smá clan og höfum tekið 3 mötsj. Fyrst töpuðum við gegn [CAL] og síðan gegn [Taeknival].
Ekkert er hægt að setja út á það þar sem að þeir voru bara mikið betri en við.
3ja matchið okkar á móti [Nett], kannski betur þekkt sem [fight], töpuðum við einnig, og það enn verr en á móti tæknival.
Á móti tæknival spiluðum við aztec og einnig á móti [nett] og voru þessir í nett mun sneggri en tæknival og voru komnir á sprengju svæðin
á undan CT stundum þrátt fyrir að CT hafii hlaupið strax af stað með hníf i hendi.
Við æfðum þetta map nokkuð fyrir þetta match og ekki tókst okkur að vera svona snöggir og ekki tæknival heldur, er madmax svona feitur ? Er eitthvað sem að við vitum ekki í sambandi við þennan leik því að þeir voru líka oft á undan okkur á bomb stað A í de_dust og við vorum líka búnir að æfa það nokkuð mikið og ekki tókst okkur að vera svona snöggir?

kveðja, Hr Hrotti