Já, við höfum ákveðið að opna aftur clanið í von um að gera það eins stórt og það var, eða 40 manns þegar best lét. :)

Það sem við ætlum að gera er að leyfa “öllum” sem eru fæddir efitr 1989 (1989 teknir með) að koma á trial hjá evil.

Þetta er eitthvað sem að clanið hefur alltaf gert, hleypa eins mörgum inn og það getur, og svo unga út góðum leikmönnum fullum af móral og skemmtilegum plönum. Munið t.d. að plee, levi, redneck(minnir mig) og margar skærustu stjörnur í cs-heiminum í dag komu beint frá evil :)

SVO! Ef þú ert fæddur eftir 1989 (Eða á því ári) og vilt koma í skemmtilegan, og stóran hóp, sem hefur metnaðinn í hófi fyrir counter-strike, en nýtur þess að spila saman þegar ekkert annað er í gangi, komdu þá á #[.evil.] @ IRCNet og fáðu að joina :)

Ef þú ert hinsvegar, góður að “hedsjotta” í counter-strike en ekki beint með húmorinn á réttum stað, þá munum við sparka þér út! :)

Sjáumst á #[.evil] :)

Skilyrði er að hafa basic kunnáttu á counter-strike, eins og að kaupa defuse kit, og skjóta EKKI á teammates!:)