Eftir að hafa byrjað aftur að spila CS “ HL2 að kenna :)” eftir þó nokkuð langt hlé 1.5 þá hef ég tekið eftir því núna hversu mikið hegðun spilarar hefur ákkúrat ekkert skánað. Ég hætti nú að spila hann algjörlega út af því að spilarar voru endalaust að ásaka menn og konur um haxx og ef þeir ná ekki að gera einhvern pirraðan á því þá flooda þeir endalaust eða tala í þetta voice dæmi þangað til að þú verður gráhærður “ geri mér grein fyrir mute”. Er það svo erfitt að pebba menn upp í stað þess að segja Haxx að segja þá einfaldlega góður. Og svo er það með þá sem eru að byrja í CS þetta eru gaura sem eru rétt að byrja kunna ekkert á þetta alveg eins og við öll sem byrjuðum að spila þennan leik afhverju ekki að gefa þeim ráð í stað þess að kalla alltaf Nooba eða gera grín af þeim :) Eflaust er þetta eitthvað sem að engin er að pæla í en ég ákvað að setja þetta hérna út bara svona til umhugsunar.
Kauffman :)