Við í [.Hate.] höfum verið að taka nokkuð af mötsum upp á síðkastið og ég vil þakka þeim klönum sem við höfum spilað við fyrir skemmtilega leiki. Hins vegar er eitt sem hefur verið eins í nær öllum mötsum sem við höfum spilað við íslensk klön en það er að allir eru sammála um einhvern tíma en svo byrjar matsið aldrei fyrr en amk hálftíma seinna!! [.Hate.] þá búnir að hanga inni á servernum með fullt lið heillengi! Reynum að sýna hverjum öðrum þá virðingu að mæta með liðið á réttum tíma. Þetta er einfaldlega orðið alveg óþolandi og virðist eingöngu eiga við íslensk klön því að við höfum ekki þurft að standa í svona veseni á móti erlendum klönum. Ég ætla bara að vona að þetta breytist sem fyrst.<br><br>[.Hate.]Memnoch