Rakst á þetta á forumunum á steampowered.com. Bætir endurspeglun á vatninu og færir okkur sem ekki getum spilað í DX9.0 svolítið nær gæðunum á vatninu. Þó það sé sagt að þetta sé fyrir DX8, þá virkar þetta líka hjá mér fyrir 8.1 (veit ekki hvort 8.1 og 8.0 tilheyri bæði DX8, en skiptir ekki öllu). Þetta er alveg heil mikill munur. Einfaldlega sækið Þennan fæl og extractið “nature” möppunni sem hann inniheldur í half-life2-mappan-ykkar\hl2\materials

Eflaust öruggara að taka backup af upprunalegu möppunni og fælunum sem eru í henni, svona ef ske kynni að eitthvað færi úrskeiðis.

Vona að þetta verði einhverjum að gagni.