Er ég einn um að sakna HLStats síðunnar? Mér fannst allavega alltaf helvíti gaman að kíkja inná þetta og sjá hvernig maður var að standa sig. Svo var heldur ekki leiðinlegt að checka á hinum. Sjá hver væri scout-meistari og það allt.

Allavega ef það er ekki þeim mun meira mál þá hvet ég stjórnendur endilega til að græja þennan HLStats server aftur. Vona að fleiri geri slíkt hið sama og á endanum verðum við búnir að mynda svo mikinn hópþrýsting að serverinn verður kominn í loftið áður en við vitum af.

gg - Teenlover/Ghetto Child