þannig er mál með vexti að þegar ég er að spila cs:source þá hikstar leikurinn bara þegar ég labba, gerist á svona sekúndu fresti. Ég er búinn að update-a driverinn fyrir skjákortið sem er btw radeon 9800 pro. ég er búinn að vírusskanna og losa mig við allt spyware. og þegar ég geri create server og er ekki tengdur netinu þá gerist þetta ekki, held að líklegasta skýringin sé sú að það sé eitthvað tengt netsambandinu á serverana, ég er ekki með neitt tengt netinu nema css. ég er búinn að prófa að breyta video stillingum en ekkert virðist virka. Þetta er orðið ógurlega pirrandi þannig að ég spyr ykkur, sem vitið meira um þetta en ég, um hjálp í þessum málum.