Hef ég verið sakaður um hack allnokkru síðan ég byrjaði í foN og er það núna farið að fara virkilega í taugarnar á mér og fékk ég alveg gjörsamlega nóg þegar einhver yrrr í rws kom í okkar lið í upphitun scrims, gerði kill, speccaði mig, sagði að miðirinn hjá mér hristist þegar ég spreyaði, þetta hefur einn meðlimur líka sagt við mig og sá hinn sami sá það sama ske hjá ella septor og sá ég þetta sjálfur hjá honum og höldum við að þetta hafi verið bara fyrir lagg, þetta kemur ekki fram í recordi hjá mér sjálfum en yrrr segist vera með þetta á recordi hjá sér, msg him fyrir það ég hef persónulega ekki séð þetta. ég sjálfur hef ekki fundið mikið fyrir laggi en er ég að nota einnig bios og rate(cfg) stillingar og verð ég að játa það að ég veit ekki hvernig staðan er á rate stillingum hvað varðar keppnis config.
Ég vil spyrja hvort að eftirfarandi stillingar séu leyfðar í bios en þær fá tölvuna til þess að vinna þónokkuð betur, ekki bara spes í cs. þær eru:
clocka 200mhz uppí 215-235mhz
clocka 400mhz minni í limit 400mhz
og setja svokallaðann “captain” á móðurborðið sem gerir 7% hraðaaukningu á öllu.

Einnig vil ég spyrjast fyrir um hvernig staðan er í keppnis config með eftirfarandi rate stillingar;
cl_updaterate 20
cl_cmdrate 101
cl_rate 20000
rate 75000
Einnig vil ég spurja hvort bannað sé að hafa alias rcon script (aliases á rcon restarts og mapchanges og sollz) og buyscript þar sem það er orðið óvenjulega vinsælt.

Ég persónulega hef þessar ofargreindar rate stillingar og vel overclockaðann bios enda cpu ekki beint slök;
AMD Athlong 64bit 3000+
512mb corsair 400mhz
ATI Radeon Pro9800 128mb (omega drivers 2567 + ATITool
MSI K8T FIS-2R móðurborð (ekki nógu gott reyndar.)

Var ég að installa nýjum driverum (eftir að ég fór í curse) og það eru Omega Drivers 2567 en þá má nálgast á www.matrix.is og ATI Tool og er ég að force-a skjáinn í 100-120hz í 800*600(cs upplausn) og því virkar það mun betur að mér finnst. Er það nú nokkuð bannað ?!?!?!?

Og í guðsbænum fólk hættið að ásaka alla um hack. Ef eitthvað að ofangreindu sem ég talaði um er ekki löglegt tek ég það strax út. Ég segi við alla sem saka mig um einhvern aukahugbúnað eftir þetta; speccið mig á skjálfta !